Mannvænt kaffi

Mannvænt kaffi

RSVP: https://luma.com/0xrmlopt  

Við bjóðum öll áhugasöm hjartanlega velkomin í óformlegt spjall um mikilvægi siðferðis í tæknigeiranum. Vertu með í að byggja upp samfélag einstaklinga sem vilja sjá tækni þróast á ábyrgan hátt, með áherslu á velferð fólks og umhverfis.

​---

​Samtök um mannvæna tækni leggja áherslu á að móta og nýta tækni á siðferðislegan hátt, með það fyrir augum að setja velferð notenda, náttúru og samfélags í heild í forgang fram yfir einkahagsmuni og skammtímaávinning.

​​📍 Snorrabar

Viltu vera með?

Skráðu þig hér að neðan og við sendum þér nánari upplýsingar um starfið og látum þig vita af næstu viðburðum.